Home Fréttir Í fréttum 19.03.2024 Vetrarþjónusta 2024-2027, Dynjandi – Klettsháls

19.03.2024 Vetrarþjónusta 2024-2027, Dynjandi – Klettsháls

76
0
Mynd: STÖÐ 2/SKJÁSKOT

Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið, á Vestursvæðii, á leiðinni Dynjand – Klettsháls.

<>

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frátöku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, eitt ár í senn.

Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 18.000 km á ári.

Verklok eru í apríl 2027.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með sunnudeginum 18. febrúar 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. mars 2024.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.