Home Fréttir Í fréttum Lögnin til Grindavíkur lekur

Lögnin til Grindavíkur lekur

58
0
RÚV – Þórdís Arnljótsdóttir

Lágur þrýstingur á heitavatnslögninni. Grafið niður á bilunina. Mikil áskorun að halda hita í húsum í Grindavíkurbæ.

<>

Vegna mikils leka á stofnæðinni til Grindavíkur og í dreifikerfinu í bænum er þrýstingur á heitavatnslögninni mjög lágur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum og þar segir að leit sé hafin að biluninni og að reynt verði að gera við hana sem fyrst.

Þar segir ennfremur að réttast hafi þótt í stöðunni að grafa niður á bilunina frekar en að leggja nýja lögn yfir hraunið.

Það sé mikil áskorun fyrir almannavarnakerfið að halda uppi hita í húsum í Grindavík. „Til að koma vatni um hitakerfi húsanna við þær aðstæður sem uppi hafa verið síðustu vikur og mánuði, breyttu píparar á vegum Almannavarna stillingu þrýstijafnara í inntaksgrindum og lokuðu fyrir neysluvatn og hleyptu vatni af þeim til öryggis.

Þetta var talið mikilvægt að gera, því það er nánast ómögulegt að tryggja eðlilega vatnsnotkun. Smávægileg breyting á stillingu þrýstijafnara eða smávægileg breyting í þrýstingi í dreifikrefinu getur þýtt að annað hvort hætti rennsli um hitakerfi húsanna alveg eða þá að rennslið stóraukist,“ segir í tilkynningu Almannavarna.

Heimild: Ruv.is