Home Fréttir Í fréttum Hraunið farið yfir heitavatnslögnina

Hraunið farið yfir heitavatnslögnina

35
0
Mikil gufa kemur frá lögninni þar sem hraunið fór yfir hana. SKJÁSKOT

Hraunið hefur farið yfir heitavatnslögnina sem ber heitt vatn frá Svartsengi til Reykjanesbæjar, Suðurnesjabæjar, Grindavíkur og Voga. Heitavatnslaust verður í að minnsta kosti nokkra daga.

<>

HS veitur hafa fyllt á tanka í Fitjum í Reykjanesbæ en svo það vatn dugi til lengri tíma hafa íbúar verið beðnir um að lækka á ofnum og spara notkun vatns eins og hægt er.

Almannavarnir segja að með miklum sparnaði geti vatnið í tönkunum dugað í allt að tólf klukkustundir.

Verið er að vinna að því að leggja nýja línu í jörðu á svæðinu og á að vera hægt að nota hana. Sú vinna mun þó taka að minnsta kosti einhverja daga.

Fólk er einnig beðið um að bíða með að hefja rafkyndingu eins lengi og það getur.

Ábendingar um hvað hægt er að gera til að draga úr vatnsnotkun og grípa til má finna hér á vef HS Veitna.

Heimild: Visir.is