Í þjóðhagsreikningum Hagstofu Íslands er fjárfesting í efnislegum þáttum skipt í þrennt, þ.e. íbúðarhúsnæði, mannvirki atvinnuveganna og opinbera innviði. Sérhæfing fyrirtækja í mannvirkjaiðnaði er skipt upp í samræmi við þessar þrjár meginstoðir.
Á síðasta ári var fjárfesting í íbúðarhúsnæði 146 ma.kr., 156 ma.kr. í opinberum innviðum og 184 ma.kr. í mannvirkjum atvinnuveganna. Við þetta má síðan bæta viðhaldsverkefnum sem eru einnig stór hluti af starfsemi fyrirtækja í mannvirkjaiðnaði sem er í raun fjórða stoðin og er viðhald opinberra innviða þar umfangsmikið.
Starfsumhverfi fyrirtækja í mannvirkjaiðnaði hefur einkennst af óstöðugleika með tíðum upp- og niðursveiflum á markaði. Fyrirtæki í mannvirkjaiðnaði hafa þ.a.l. þurft að sýna mikla aðlögunarhæfni til að takast á við breyttar markaðsaðstæður sem oft gera lítil eða engin boð á undan sér.
Í lok síðasta árs bárust fregnir af versnandi stöðu á byggingamarkaði þar sem 240 fyrirtæki í greininni urðu gjaldþrota til samanburðar við 86 fyrirtæki árið á undan. Markaðsaðstæður á síðasta ári mótuðust af aukinni verðbólgu og hækkun stýrivaxta en ekki síst af mikilli hækkun á byggingar- og fjármagnskostnaði auk fyrirvaralausra skattahækkana vegna vinnu manna á verkstað.
Árlegt Útboðsþing SI fer fram í dag 30. janúar í samstarfi við Félag vinnuvélaeigenda og Mannvirki – félag verktaka en þar munu opinberir verkkaupar kynna fyrirhuguð útboð ársins á verklegum framkvæmdum.
Fyrirtæki innan raða SI hafa lengi kallað eftir hagkvæmu, stöðugu og skilvirku starfsumhverfi og innviðafjárfestingu þar sem áætlanir ganga eftir. Stór liður í því að bæta starfsumhverfi fyrirtækja í mannvirkjaiðnaði er fólginn í bættum útboðsvenjum opinberra verkkaupa.
Á Útboðsþingi SI á síðasta ári voru lagðar fram tillögur að 12 góðum útboðsvenjum. Þessum tillögum var vel tekið en þrátt fyrir áhuga allra hlutaðeigandi og vilja til breyttra útboðsvenja hefur lítið áunnist. Nauðsynlegt er að kalla marga aðila að borði sem þurfa að ganga í sömu átt í þeirri vegferð að bæta útboðsvenjur.
Með samstarfsvettvangi opinberra verkkaupa væri unnt að einfalda samtalið við mannvirkjaiðnaðinn um bætt starfsumhverfi og innleiðingu góðra útboðsvenja til að tryggja samræmt verklag. Slíkir samstarfsvettvangar þekkjast víða í nágrannaríkjum okkar og hafa reynst vel með framgreind markmið í huga.
Góðar útboðsvenjur væru til hagsbóta bæði fyrir fyrirtæki í mannvirkjaiðnaði og opinbera verkkaupa enda eru tillögurnar til þess fallnar að draga úr kostnaði, auka fyrirsjáanleika og bæta starfsumhverfi.
Þannig geta fyrirtækin gert raunhæfar áætlanir og lagt inn hagstæðari tilboð í opinberar framkvæmdir. Hagstæðari tilboð leiða til lægri kostnaðar opinberra verkkaupa og draga þannig úr útgjöldum hins opinberra, íslenskum skattgreiðendum til bóta.
Útboðsvenjurnar sem um ræðir og geta lækkað kostnað og dregið úr sóun eru eftirtaldar:
- Framkvæmd markaðskannana
- Valinn góður tími fyrir útboð
- Gera ráð fyrir eðlilegum undirbúningstíma framkvæmda
- Auka gæði kostnaðaráætlana
- Gera ráð fyrir hæfilegri greiðslu fyrir þátttöku
- Nota hæfileg og viðeigandi verðtryggingarákvæði
- Auka nákvæmni í útboðsskilmálum
- Hafa eðlileg og hæfileg hæfisskilyrði
- Gera hóflegar kröfur um gagnaskil
- Áskilja ekki eignarrétt á hugverkum
- Hafa vistvæna skilmála í samræmi við aðstæður á markaði
- Hafa bjóðendur viðstadda opnun
Höfundar:
Jóhanna Klara er sviðsstjóri mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins og Bjartmar Steinn Guðjónsson er viðskiptastjóri á mannvirkjasviði Samtaka iðnaðarins.
Heimild: Visir.is