Home Fréttir Í fréttum Útboðsþing SI 2024 haldið þann 30. janúar nk.

Útboðsþing SI 2024 haldið þann 30. janúar nk.

58
0
Útboðsþing SI

Útboðsþing SI 2024 fer fram í Háteig á Grand Hótel þriðjudaginn 30. janúar kl. 13-16. Á Útboðsþingi SI sem er haldið í samstarfi við Félag vinnuvélaeigenda og Mannvirki – félag verktaka verða kynnt fyrirhuguð útboð ársins 2024 á verklegum framkvæmdum opinberra aðila.

<>

Fundarstjóri er Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI.

Dagskrá

  • Ávarp – Árni Sigurjónsson, formaður SI
  • Ávarp – Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
  • Samantekt – Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir – Óskar Jósefsson, forstjóri
  • Vegagerðin – Arndís Ósk Ólafsdóttir Arnalds, framkvæmdastjóri mannvirkjasviðs
  • Reykjavíkurborg – Einar Þorsteinsson, borgarstjóri
  • Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu – Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri
  • Landsvirkjun – Ásbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri framkvæmda
  • Landsnet – Unnur Helga Kristjánsdóttir, forstöðumaður verkefnastjórnunar framkvæmda
  • Rarik – Kristín Soffía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri þróunar og framtíðar
  • Veitur – Heimir Hjartarson, bakhjarl verkefnaskrár hitaveitu
  • Nýr Landspítali – Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri
  • Isavia – Páll Svavar Pálsson, forstöðumaður flugvallarþróunar og uppbyggingar

Heimild: SI.is