Home Fréttir Í fréttum 27.01.2024 Yfirborðsmerkingar, sprautuplast á nyrðri hluta Vestursvæðis, Norðursvæði og Austursvæði 2024-2026

27.01.2024 Yfirborðsmerkingar, sprautuplast á nyrðri hluta Vestursvæðis, Norðursvæði og Austursvæði 2024-2026

41
0
Mynd: Vegagerðin

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirborðsmerkingar akbrauta með sprautuplasti á þremur svæðum Vegagerðarinnar, á nyðri hluta Vestursvæðis, Norðursvæði og Austursvæði. Um er að ræða merkingu miðlína, annarra lína og yfirlagnakafla á vegum með bundið vegyfirborð árin 2024-2026.

<>

Verkið er boðið út til þriggja ára með möguleika á framlengingu verksamnings sumarið 2027 og sumarið 2028.

Verkið felst í yfirborðsmerkingum akbrauta. Áætlað verkmagn er 1.658 km.

Helstu magntölur, miðað við eitt ár, eru:  

  • Sprautuplastaðar miðlínur 0,7 mm þykkar     1.100 km
  • Sprautuplastaðar miðlínur 1,0 mm þykkar        280 km
  • Sprautuplastaðar miðlínur 1,5 mm þykkar        270 km
  • Plaststrik b = 200 mm, þykkt = 1,0 mm              4 km
  • Plaststrik b = 200 mm, þykkt = 1,5 mm              4 km
  • Viðverudagar                                             100 dagar

Verki skal að fullu lokið 1. október ár hvert.

Útboðsgögnin eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með miðvikudeginum 24. janúar 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 27. febrúarr 2024.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign