Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirborðsmerkingar akbrauta með sprautuplasti á þremur svæðum Vegagerðarinnar, á Suðursvæði og syðri hluta Vestursvæðis. Um er að ræða merkingu miðlína, annarra lína og yfirlagnakafla á vegum með bundið vegyfirborð árin 2024-2026.
Verkið er boðið út til þriggja ára með möguleika á framlengingu verksamnings sumarið 2027 og sumarið 2028.
Verkið felst í yfirborðsmerkingum akbrauta. Áætlað verkmagn er 1.233 km.
Helstu magntölur, miðað við eitt ár, eru:
- Vegmössun, (deili)línur b=100, þ=3,0 mm 22 km
- Vegmössun, deililínur b=150, þ=3,0 mm 22 km
- Vegmössun, línur b=200 mm, þ=3,0 mm 29 km
- Sprm. miðlína, b=100 mm, þ=0,7 mm 310 km
- Sprm. miðlína, b=100 mm, þ=1,0 mm 450 km
- Sprm. miðlína, b=100 mm, þ=1,5 mm 75 km
- Sprm. deililína, b=100 mm, þ=1,0 mm 5 km
- Sprm. (deili)lína, b=150 mm, þ=1,0 mm 5 km
- Sprm. (deili)lína, b=150 mm, þ=1,5 mm 10 km
- Sprm. kantlína, b=100 mm, þ=0,7 mm 50 km
- Sprm. kantlína, b=100 mm, þ=1,0 mm 60 km
- Plaststrik, b=200 mm, þ=1,0 mm 170 km
- Plaststrik, b=200 mm, þ=1,5 mm 25 km
- Viðverudagar 100 dagar
Verki skal að fullu lokið 1. október ár hvert.
Útboðsgögnin eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 24. janúar 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 27. febrúarr 2024.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign