Home Fréttir Í fréttum Berjast um bestu til­löguna

Berjast um bestu til­löguna

160
0
Dekkjaverkstæði N1 nýtur mikilla vinsælda meðal íbúa í vesturbæ Reykjavíkur. Mynd: Visir.is

Arkítektastofurnar Trípolí, Gríma arkitektar og Sei Studio keppast um bestu tillöguna að þróun lóðar Festar við Ægisíðu 102 í Reykjavík sem í dag hýsir þjónustustöð N1. Íbúabyggð kemur á svæðið og lofar Festi góðu samtali í nágrenninu.

<>

Tæp tíu ár eru liðin síðan N1 tilkynnti að til stæði að loka bensínstöðinni. Um er að ræða sögulega bensínstöð frá 1957 en hún var fyrsta sjálfsafgreiðslustöðin á Íslandi.

Til stóð að hætta rekstrinum eigi síðar en í janúar í fyrra en ekki hefur orðið af því enn sem komið er. Lokun stöðvarinnar er að hluta háð deiliskipulagi við verslun Krónunnar á Fiskislóð þar sem Reykjavíkurborg hefur gefið grænt ljós á sjálfsafgreiðslustöð með fjórum dælum. Deiliskipulagið hefur ekki verið samþykkt.

Í tilkynningu frá Festi segir að bensínafgreiðslua færist á lóð Krónunnar á Granda um leið og sú breyting verði fær. Á Ægissíðu verði áfram starfækt dekkjaverkstæði og önnur þjónusta þar til hægt verði að hefast handa við frekari þróun á svæðinu að tilskyldum leyfum, svo sem með samþykkt á deiluskipulagi.

Við samruna Festis og N1 árið 2018 kom fram að til stæði að opna Krónu á Ægisíðu auk íbúðarhúsnæðis.

Samkvæmt samkomulagi Festis við Reykjavíkurborg á Festi byggingarétt á lóðinni. Byggingarmagnið gæti orðið 25-30 þúsund fermetrar samkvæmt fjárfestakynningu Festis árið 2021.

Þáverandi forstjóri Festis sagði félagið ekki sjálft ætla að byggja heldur búa til deiliskipulag og selja byggingaraðilum.

Valnefnd kemur til með að velja þá tillögu arkitektanna sem best þykir falla að áformum um vinnu við deiliskipulag sem taka á mið af Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040. Í valnefnd um þróun lóðarinnar sitja Guðrún Ingvarsdóttir, arkitekt, G. Oddur Víðisson, arkitekt og Óðinn Árnason, framkvæmdastjóri Festi fasteigna.

Við val á arkitektastofum til þátttöku var einkum litið til þess að framsýni og næmni kæmi fram í fyrrum verkum þeirra og að stofurnar væru með reynslu af skipulagi og þróun þar sem lögð er áhersla á góða nýtingu lands og þéttingu byggðar. Gert er ráð fyrir að niðurstaða um val á tillögu liggi fyrir í mars næstkomandi en Reykjavíkurborg verður til ráðgjafar við yfirferð á tillögunum.

Lofa góðu samtali við íbúa svæðisins
„Það er mikið framfaraskref að nú sé þessi vegferð hafin þar sem gott samtal við íbúa svæðisins og Reykjavíkurborg verður leiðarstefið í allri vinnu þegar kemur að hönnun og útfærslu á svæðinu í heild.

Við hlökkum til að sjá tillögurnar og leggjum okkur fram um að vanda alla þá vinnu sem fram undan er í góðu samstarfi við Reykjavíkurborg þannig að uppbyggingin falli sem best að áformum hennar, hverfinu til sóma,“ segir Óðinn Árnason, framkvæmdastjóri Festi fasteigna.

Ásta Sigríður Fjeldsted, forstjóri Festi, tekur undir þetta.

„Við erum gríðarlega ánægð með að loks sé þetta verkefni komið af stað. Stofurnar sem valdar voru fá einstakt tækifæri til að spreyta sig á hönnun þessa verðmæta svæðis sem er íbúum borgarinnar svo mikilvægt.

Fyrir liggur stefna Reykjavíkurborgar um að sú starfsemi sem á lóðinni er víki og í staðinn komi íbúabyggð. Með samkeppni um þróun svæðisins teljum við mestar líkur á að niðurstaða fáist sem falli að þörfum íbúa og borgarinnar.“

Heimild: Visir.is