Fjallabyggðarhafnir óskar eftir tilboðum í verkið “Siglufjörður – Innri höfn, steypt þekja og lagnir 2024”.
Helstu verkþættir og magntölur eru:
- Steypa upp vatns- rafbúnaðarhús.
- Leggja ídráttarrör.
- Leggja vatnslagnir.
- Setja upp vatnshana og tenglaskápa.
- Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna undir steypu.
- Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 2.100 m2.
Verkinu í heild skal lokið eigi síðar en 15. september 2024.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 8. janúar 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 23. janúar 2024.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign