Home Fréttir Í fréttum Styttist í hönnunar­út­boð Þjóðar­hallar

Styttist í hönnunar­út­boð Þjóðar­hallar

69
0
Ásmundur Einar Daðason ráðherra er með málefni íþrótta á sinni könnu. VÍSIR/ARNAR

Ásmundur Einar Daðason segir að hönnunarútboð nýrrar þjóðarhallar sé á næsta leyti. Kostnaðarskipting á milli ríkis og borgar sé langt komin.

<>

Ásmundur var spurður út í það hvað væri að frétta af nýrri þjóðarhöll á blaðamannafundi í höfuðstöðvum ÍSÍ í byrjun vikunnar. Þá var undirritaður nýr samningur um átta nýjar starfsstöðvar til eflingar íþróttastarfs á landsvísu. Kostnaður við þá aðgerð eru 400 milljónir króna.

Ný þjóðarhöll hefur verið á teikniborðinu í áraraðir en enn hefur fyrsta skóflustungan ekki verið tekin.

„Þar höfum við verið í samtali á milli ríkis og borgar og við erum langt komin í því bæði varðandi kostnaðarskiptingu og annað sem búið er að kynna hjá ríki og borg.

Ég á von á því að við eigum að geta fylgt þeim samþykktum eftir á næstunni og sett verkefnið formlega af stað með hönnunarútboði,“ sagði Ásmundur Einar í samtali við Stefán Árna Pálsson íþróttafréttamann.

Annar mögulegur kostnaðarliður ríkisins er pulsan fræga sem komið var fyrir á Laugardalsvelli fyrir heimaleiki Blika í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar. Ekki liggur ljóst fyrir hver á að borga brúsann. Blikar vilja sjálfir meina að þeir beri ekki ábyrgð á þeim kostnaði og KSÍ vill að ríkið stígi inn í.

„Það hefur verið samtal þar í gangi um að allir aðilar leggi eitthvað af mörkum. Þannig virkar samvinnan.

Við höfum verið að afla fjárheimilda til þess í gegnum Alþingi og það er ákveðið fjármagn sem við fengum úthlutað í kringum afgreiðslu fjárlaga núna sem tengist þessu verkefni. Ég allavega vona að við getum lagt eitthvað í púkkið þar og það geti vonandi klárast núna í framhaldi afgreiðslu fjárlaga.“

Heimild: Visir.is