Veitur ohf. óska tilboða í ofangreint verk.
Verkið felst í uppsetningu 132 kV aflspenna fellst í eftirtöldu: Flutningur á tveimur 132/33/11 kV spennum frá Sundahöfn að aðveitustöð A8, Korpu og móttöku og uppsetningu á tveimur 60 MVA, 132/33/11 kV spennum í aðveitustöð A8, Korpu.
Verktaki skal við upphaf verks kynna sér allar teikningar og búnað sem afhentur verður af verkkaupa og gera áætlun byggða á verktilhögun framleiðenda spenna og verkkaupa, bæði hvað snertir úrlausnir og framkvæmdartíma.
Mikilvægt er að verkið verði unnið á þeim tíma/tímum sem verkkaupi óskar eftir.
Útboðsgögn afhent: | 14.12.2023 kl. 15:20 |
Skilafrestur | 18.01.2024 kl. 14:00 |
Opnun tilboða: | 18.01.2024 kl. 14:00 |