Kópavogsbær óskar eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í útboði vegna verkefnisins
„Umferðarljósabúnaður – Fífuhvammsvegur og Kársnesbraut Kópavogsbæ“.
Verkefnið felst í útvegun umferðaljósabúnaðar, í samræmi við útboðsgögn. Uppsetning búnaðar á verkstað er ekki innifalin í útboði þessu.
Útboðsgögn eru aðgengileg í útboðskerfinu TendSign og skulu bjóðendur skila inn tilboði rafrænt inn í TendSign fyrir kl.11:00 mánudaginn 15. janúar 2024.
Opnun tilboða fer fram með rafrænum hætti í TendSign og verður opnunarskýrsla send öllum bjóðendum eftir opnun.
Skilafrestur tilboða er til 15.01.2024 kl. 11:00