Bæjarráð opnaði tilboð í byggingarrétt lóða við Langatanga og Fossatungu á 1606. fundi sínum í morgun 14. desember.
Fresturinn til að skila inn tilboðum var til 7. desember og samkvæmt Regínu Ásvaldsdóttur bæjarstjóra var eftirspurnin eftir byggingarrétt þessara lóða samkvæmt væntingum og bárust alls 36 gild tilboð í þær.
Þar af voru 7 tilboð í einbýlishúsalóðir við Fossatungu og 29 tilboð í raðhúsalóðir við Langatanga.
Tilboðin verða skráð, flokkuð nánar og tekin til afgreiðslu á næsta fundi bæjarráðs sem haldinn verður fimmtudaginn 21. desember 2023.
Heimild: Mosfellsbær