Home Fréttir Í fréttum Eyjafjarðarbraut vestri færð austur fyrir Hrafnagil

Eyjafjarðarbraut vestri færð austur fyrir Hrafnagil

80
0
Nýr vegakafli við Hrafnagil Eyjafirði. Grjótverja þarf allan veginn og er það verk langt komið.

Framkvæmdir standa yfir við Eyjafjarðarbraut vestri (821). Verkið felst í nýbyggingu Eyjafjarðarbrautar vestri á um 3,11 km kafla fram hjá þéttbýlinu við Hrafnagil. Verkinu á að ljúka í júlí 2024.

<>

Verkefnið ber heitið Eyjafjarðarbraut vestri (821) um Hrafnagil. Tilboð í verkið voru opnuð 8. mars 2022 og í framhaldi samið við lægstbjóðendur, GV Gröfur ehf. á Akureyri.

Kort sem sýnir útboðskaflann

Verkið felst í nýbyggingu Eyjafjarðarbrautar vestri á um 3,11 km kafla fram hjá þéttbýlinu við Hrafnagil. Einnig er innifalið í verkinu bygging heimreiða og tenginga, samtals um 0,25 km. Eyjafjarðarbraut vestri, Miðbraut og tengingar inn í þéttbýlið verða 8.0 m breiðar með bundnu slitlagi. Heimreiðar verða 4,0 m breiðar með bundnu slitlagi.

Þéttbýlið í Hrafnagili hefur byggst hratt upp á undanförnum árum. Síðustu aldamót bjuggu um 135 manns í þorpinu, íbúar voru orðnir 260 fyrir fimm árum en eru í dag um 350 (heimild: Hagstofan).

Nýr vegakafli við Hrafnagil Eyjafirði.
Nýja veglínan sveigir austur fyrir þorpið og kemur til með að liggja milli þess og Eyjafjarðarár. Mynd/Vilhelm Gunnarsson

Núverandi þjóðvegur liggur í gegnum þorpið og óskaði sveitarfélagið Eyjafjarðarsveit eftir því að vegurinn yrði færður út fyrir þorpið, fyrst og fremst til að auka umferðaröryggi enda er hraði umferðar í gegnum þorpið oft mikill. Meðalumferð á ári (ÁDU) um Eyjafjarðarbraut vestri árið 2020 var um 1470 bílar á sólarhring.

Með auknum íbúafjölda hefur uppbygging íbúðahúsnæðis í þorpinu vaxið. Land sem verður til við færslu þjóðvegarins er dýrmætt byggingarland sem mun stuðla að enn meiri uppbyggingu í þorpinu.

Nýr vegakafli við Hrafnagil Eyjafirði.
Unnið að færslu Eyjafjarðarbrautar austur fyrir Hrafnagil.

Framkvæmdir við nýja veginn hófust sumarið 2022. Nýja veglínan sveigir austur fyrir þorpið og kemur til með að liggja milli þess og Eyjafjarðarár. Fyrsta verkefni verktakans var að setja fyllingar og farg á hina nýju veglínu.

Þar sem vegurinn mun liggja eftir sléttu landi á eyrum Eyjafjarðarár, þar sem jarðvegur er bæði sendinn og leirkenndur, var nauðsynlegt að hann fengi að síga í dágóðan tíma.

Vinnu við fyllingar, fláafleyga og ræsalögn er lokið. Lítilsháttar vinna er eftir við styrktarlag og grjótvörn, sem klárast vorið 2024. Framkvæmdir hafa legið niðri um tíma vegna kulda og fara að öllum líkindum ekki af stað aftur fyrr en sól hækkar á lofti eftir áramót.

Verklok eru áætluð 15. júlí 2024.

Heimild: Vegagerdin.is