F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Elliðaárdalur, Grænugróf – Breiðholtsbraut, Göngu- og hjólastígar, útboð 15940
Framkvæmdin hefst á upprifi núverandi yfirborðs þar sem breytingar verða. Að því loknu felst framkvæmdin í fullnaðarfrágangi göngu- og hjólabrúar yfir Elliðaá við Grænugróf í Elliðaárdal ásamt stígagerð frá Grænugróf að Breiðholtsbraut.
Framkvæmdin felst einnig í breytingum á reiðstígum og gerð nýs áningarstaðar við Dimmu.
Hluti heildarframkvæmdarinnar felst í landmótun og frágangi gróðursvæða við brúna og nýju stígana, stígalýsingu og nýjum skiltum og merkingum í tengslum við hana. Brúarhandrið og lýsing brúarinnar verður boðin út sérstaklega í öðru útboðsverki.
Helstu framkvæmdaþættir verksins eru eftirfarandi:
- Uppgröftur og jarðvegsskipti með aðfluttri fyllingu.
- Fullnaðarfrágangur göngu- og hjólabrúar við Grænugróf fyrir utan handrið, polla við brúna og lýsingar í þau.
- Fullnaðarfrágangi lýsingar meðfram göngustígum.
- Fullnaðarfrágangi malbikaðs yfirborðs ásamt hellulögn á hlutasvæðum.
- Fullnaðarfrágangi skilta og merkinga.
- Fullnaðarfrágangi gróðursvæða og áningarstaðar í samræmi við hönnunargögn.
Helstu magntölur verksins eru:
- Steypa í brú og sökkla 240 m3
- Slakbent járnlögn í brú og sökkla 37.000 kg
- Fylling við brúarmannvirki 840 m3
- Upprif malbiks 1.100 m2
- Uppgröftur 2.000 m3
- Malarfylling í stíga og áningarstaði 3.000 m3
- Malbik 5.400 m2
- Hellu- og steinlagnir 335 m2
- Þökulögn 1.900 m2
- Lagnir- Uppgröftur 830 m3
- Lagnir- Fylling 320 m3
- Kaldavatnslagnir 155 m
- Uppsetning ljósastólpa 35 stk
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:00 þann 5. desember 2023. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 4. janúar 2024.