Home Fréttir Í fréttum Um­ferð hleypt á nýja veginn um Teigsskóg

Um­ferð hleypt á nýja veginn um Teigsskóg

90
0
Neðan Hallsteinsness liggur vegurinn um vogskorna ströndina. Séð inn Þorskafjörð. EGILL AÐALSTEINSSON

Stór stund rennur upp í vegamálum Vestfirðinga á morgun þegar vegurinn umdeildi um Teigsskóg verður opnaður umferð.

<>

Í dag var jafnframt skrifað undir verksamning um næsta verkáfanga; gerð vegfyllinga yfir Djúpafjörð og Gufufjörð.

Í fréttum Stöðvar 2 kom fram að það verður klukkan tvö á morgun sem Vegagerðin ætlar að opna veginn.

Verkefnið snýst um endurnýjun Vestfjarðavegar um Gufudalssveit. Þar eru síðustu malarkaflarnir á leiðinni milli Reykjavíkur og Patreksfjarðar en einnig er markmiðið að losna við tvo fjallvegi, Ódrjúgsháls og Hjallaháls, og fá láglendisveg í staðinn.

Svona verður Vestfjarðavegur um Gufudalssveit eftir opnun nýju vegarkaflanna klukkan 14 á morgun.
GRAFÍK/SARA RUT FANNARSDÓTTIR

Brúin yfir Þorskafjörð var opnuð í síðasta mánuði með tíu kílómetra styttingu. Á morgun opnast vegurinn um Teigsskóg en einnig nýr sveitavegur um austanverðan Djúpafjörð.

Þar með færist þjóðvegurinn af 336 metra háum Hjallahálsi, fer út fyrir Hallsteinsnes og um austanverðan Djúpafjörð, en vegfarendur þurfa þó áfram að aka yfir Ódrjúgsháls.

En aðeins tímabundið því framundan eru síðustu áfangarnir, að brúa Djúpafjörð og Gufufjörð.

Veglínan ofan hins eiginlega Teigsskógar.
EGILL AÐALSTEINSSON

Svo vill til að núna síðdegis skrifuðu vegamálastjóri og framkvæmdastjóri Borgarverks undir verksamning um gerð jarðvegsfyllinga yfir firðina.

Þegar tilboð voru opnuð í síðasta mánuði reyndist Borgarverk eiga lægsta boð, upp á 838 milljónir króna, eða 74 prósent af áætluðum kostnaði og nærri 300 milljónum króna undir. Borgarverk er þegar með tæki og mannskap á staðnum sem verktaki vegarins um Teigsskóg.

Atli Þór Jóhannsson, framkvæmdastjóri Borgarverks, og Bergþóra Þorkelsdóttir vegamálastjóri handsala verksamning eftir undirritun síðdegis.
VEGAGERÐIN/SÓLVEIG GÍSLADÓTTIR

Lokaáfanginn verður svo að smíða þrjár brýr yfir firðina tvo. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra sagði við opnun Þorskafjarðarbrúar í síðasta mánuði að brúasmíðin yrði boðin út á næsta ári. Kvaðst hann vona að verkinu lyki árið 2026 eða í síðasta lagi árið 2027.

Á drónamyndum í frétt Stöðvar 2 sést að þegar er búið að gera fyrsta hluta vegfyllingar út í Djúpafjörð. Þar geta áhorfendur einnig glöggvað sig á vegstæðinu um Teigsskóg.

Nánar í frétt Stöðvar 2:

Heimild: Visir.is