Home Fréttir Í fréttum 07.12.2023 Álftanesvegur (415), vegamót við Garðahraunsveg, ráðgjöf og eftirlit

07.12.2023 Álftanesvegur (415), vegamót við Garðahraunsveg, ráðgjöf og eftirlit

133
0
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

Verðkönnun: Álftanesvegur (415), vegamót við Garðahraunsveg, ráðgjöf og eftirlit.

<>

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í eftirlit og ráðgjöf með verkinu Álftanesvegur (415-04), vegamót við Garðahraunsveg.

Verkið felst í tilfærslu á vegamótum Álftanesvegar og Garðahraunsvegar, þ.m.t. breikkun Álftanesvegar á um 400 m kafla.

Einnig er um að ræða nýbyggingu Garðahraunsvegar og breytingu á vegamótum Garðahraunsvegar og Garðaholtsvegar, samtals um 600 m. Inn í verkinu er einnig nýbygging göngu- og hjólastíga, samtals um 1.400 m. Verklok eru áætluð 31. ágúst 2024.

Verkönnunargögn eru aðgengileg í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudaginn 28. nóvember 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 fimmtudaginn 7. desember 2023.