Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í verkið
„STÆKKUN LEIKSKÓLA Á HORNAFIRÐI – SJÓNARHÓLL“ eins og því er lýst í meðfylgjandi útboðsgögnum.
Hér er um almennt útboð að ræða og lýtur þeim reglum sem um það gilda. Innifalið í tilboði skal vera allt það sem til þarf að ljúka verkinu eins og það er skilgreint í útboðsgögnum.
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verkið felst í að reisa tveggja deilda viðbyggingu við núverandi byggingu leikskólans Sjónarhóls.
Búið er að grafa fyrir grunni og reka niður staura og verður viðbygging grunduð á þá. Núverandi leikskóli er skráður sem matshluti 1- og er 980,1 m²- og ný viðbygging er skráð sem matshluti 2- og verður 356,72 m².
Útveggir viðbyggingar verða timburveggir klæddir með ljósri álklæðningu. Gluggar- og útihurðir eru ál-tré kerfi- og þak er hefðbundið loftað timburþak, klætt með þakpappa.
Viðbyggingin skal að framkvæmdum loknum hljóta norræna Svansmerkið fyrir umhverfisvæna hönnun og efnisval.
Helstu verkþættir
Um er að ræða jarðvinnu og lagnir í grunni, stálvirki, timburburðargrind, lagnir, raflagnir, ytri- og innri frágang.
Vettvangskönnun á verkstað
Vettvangskönnun verður haldin með tilboðsgjöfum eftir óskum. Nákvæm tímasetning og fyrirkomulag vettvangskönnunar verður skv. samkomulagi aðila. Bjóðendur eru hvattir til að mæta í vettvangskönnun og kynna sér aðstæður á verkstað.
Útboðsgögn
Útboðsgögn bera nafnið: „STÆKKUN LEIKSKÓLA Á HORNAFIRÐI – SJÓNARHÓLL“ og sundurliðast eftirfarandi:
- Útboðs- og verkskilmálar
- Teikningar og verklýsingar arkitekta, gerðar af Arkþing – Nordic ehf.
- Teikningar og verklýsingar, gerðar af Mannvit ehf. þ.e. Jarðvinna, Burðarvirki, lagnir, loftræsting, raflagnir
- Tilboðsblað ásamt tilboðsskrá
Útboðsgögn fást afhent rafrænt án endurgjalds frá og með 22.11.2023, eftir klukkan 13:00, með því að senda fyrirspurn í tölvupósti á netfangið utboð@hornafjorður.is til vara bjorni@hornafjordur.is – og óska eftir því að fá send útboðsgögn í verkið „Stækkun leikskóla á Hornafirði – Sjónarhóll “.
Þá verður fljótlega sendur hlekkur til baka á þann stað sem hægt verður að sækja gögnin: Vinsamlegast takið fram í viðfangsefni pósts „STÆKKUN LEIKSKÓLA Á HORNAFIRÐI – SJÓNARHÓLL “.
Tilboðsgjafar skulu vera búnir að skila inn tilboði merktu „STÆKKUN LEIKSKÓLA Á HORNAFIRÐI – SJÓNARHÓLL. Tilboð“ eigi síðar en miðvikudaginn 20.12.2023 kl. 12:00. þau verða opnuð samtímis kl. 14:00 í viðurvist þeirra bjóðenda er þess óska.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Tilboð eru bindandi í 5 vikur frá opnunardegi.
Nánari upplýsingar veita:
Björn Imsland eða Brynja Dögg Ingólfsdóttir. Sími 470-8000. Netfang utboð@hornafjordur.is til vara bjorni@hornafjordur.is