Home Fréttir Í fréttum Reykjanesbær stækkar um helming

Reykjanesbær stækkar um helming

168
0
Ljósmynd: VÍKURFRÉTTIR

Þróunaráætlun uppbyggingar á Ásbrú gerir ráð fyrir að íbúar á svæðinu verði orðnir 15 þúsund árið 2050. Í dag búa 4 þúsund manns á Ásbrú og alls rúmlega 22 þúsund í Reykjanesbæ.

<>

Þróunaráætlun Kadeco fyrir Ásbrú, K64, gerir ráð fyrir að uppbyggingu lokinni muni um fimmtán þúsund manns búa á svæðinu og íbúafjöldi því nærri fjórfaldast. Í dag búa um 22 þúsund manns í Reykjanesbæ svo íbúafjöldinn mun aukast um helming.

„Hverfið býður vel upp á að íbúafjöldinn sé stóraukinn. Það er búið að leggja vegi, veitukerfi og aðra nauðsynlega innviði. Ríkið fékk ekki bara afhent mannvirki frá varnarliðinu á sínum tíma heldur einnig alla innviði sem það hafði byggt upp.

Auðvitað þarf að byggja upp einhverja nýja innviði samhliða uppbyggingunni en flest allir eru nú þegar til staðar. Því er hægt að setja mikið púður í að byggja upp góð úti- og leiksvæði og fegra umhverfið almennt,“ segir Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco.

Heimild: Vb.is