Home Í fréttum Niðurstöður útboða Opnun útboðs: Ráðgjöf og eftirlit með vetrarþjónustu á Suðursvæði 2023-2025

Opnun útboðs: Ráðgjöf og eftirlit með vetrarþjónustu á Suðursvæði 2023-2025

324
0

Opnun tilboða 31. október 2023.
Ráðgjöf og eftirlit með vetrarþjónustu á Suðursvæði veturna 2023-2024 og 2024-2025.

<>

Um er að ræða eftirtalin svæði: Reykjanes, Höfuðborgarsvæðið, Vesturlandsvegur, Hvalfjarðarvegur og Þingvallavegur, Hellisheiði og Þrengslavegur.

Verkið felst í gæðaeftirliti með hreinsun á snjó og krapa af vegum, vegköntum, gatnamótum og öðrum þeim mannvirkjum sem tilheyra veginum svo og eftirliti með hálkuvörn á vegyfirborði, mælingum á ástandi vegyfirborðs og upplýsingagjöf til vaktstöðvar um færðarástand og veður.

Einnig felur verkið í sér ráðgjöf um nýtingu tækjaflota vetrarþjónustuverktaka.

Áætlaður akstur eftirlitsbifreiðar er 22.000 km og vinnutími fyrir hvort tímabilið 2.928 klst.

Gildistími samnings er til 31. mars 2025. Heimild er til framlengingar samnings í allt að tvö ár, eitt ár í senn.