Home Fréttir Í fréttum Uppbygging á Jaðarsbökkum á Akranesi

Uppbygging á Jaðarsbökkum á Akranesi

128
0
Mynd: Akranes.is

Vel sóttur kynningarfundur var í gær í BíóhöllIinni á Akranesi þar sem Nordic arkitektar, Sei arkitektar og Basalt arkitektar, sem unnið hafa frumhönnun að breyttu skipulagi Jaðarsbakkasvæðsins, kynntu hver sína hugmynd um uppbyggingu svæðisins.

<>

Á fundinum var einnig kynning frá Magneu Þóreyju Hjálmarsdóttur, formanni starfshóps um stefnumótun vegna uppbyggingar á Jaðarsbökkum, á vinnu starfshópsins og niðurstöðum. Auk þess var Dr. Viðar Halldórsson, prófessor við Háskóla Íslands, með erindið „Hvað gerir samfélag að samfélagi“.

Fundurinn var haldinn í Bíóhöllinni á Akranesi og sendur út í beinu streymi en hægt er að horfa á upptöku frá fundinum hér:

Glærur úr kynningu Magneu á vinnu starfshópsins má nálgast hér: starfshopur-um-stefnumotun-vegna-uppbyggingar-a-jadarsbokkum.pdf

Heimild: Akranes.is