Home Fréttir Í fréttum Efla velti 9 milljörðum í fyrra

Efla velti 9 milljörðum í fyrra

147
0
Ljósmynd: Haraldur Guðjónsson

Velta þriggja stærstu verkfræðistofanna hér á landi nam 22 milljörðum króna á síðasta ári og var það nálægt 2/3 af heildarveltu innlendra verkfræðistofa. Velta Eflu var sú mesta af þessum þremur eða tæpir 9 milljarðar. Þar á eftir kom Verkís með 7,3 milljarða og Mannvit með 5,8 milljarða.

<>

Þrjár stærstu langstærstar
Þessar þrjár stofur bera höfuð og herðar yfir aðrar verkfræðistofur hér á landi hvað tekjur og afkomu varðar en fjórða stærsta verkfræðistofan mælt í veltu, VSÓ ráðgjöf, var einungis með tæplega þriðjung af veltu þriðja stærsta fyrirtækisins, Mannvits. Velta VSÓ ráðgjafar var 1,8 milljarður en Ferill verkfræðistofa kom þar á eftir með veltu upp á 1,1 milljarð króna.

Heimild: Vb.is