Nýr Landspítali ohf., kt. 500810-0410, Alaskareiturinn við Burknagötu, 121 Reykjavík, óskar eftir tilboðum í sérfræðiþjónustu fyrir verkeftirlit vegna byggingaverkefna NLSH.
Verkkaupi er í þessum gögnum og almennt auðkenndur með skammstöfuninni NLSH. Sú sérfræðiþjónusta sem leitað er tilboða í er tilgreind hér fyrir neðan. Athugið að listinn er ekki tæmandi.
- Uppsteypa
- Þakfrágangur
- Frágangur utanhúss – veggir, gluggar og hurðir
- Innanhúsfrágangur – veggir, loft, gólf, innréttingar, brunaþéttingar o.þ.h.
- Lagnir- og loftræsting. Almenn og sérhæfð lagna- og loftræstikerfi húsa + lagnir í lóð
- Háspenna og háspennudreifing lóðar, spennar og jarðskaut að aðaltöflum bygginga og eldingarvarar
- Raflagnir – smáspenna, lágspenna, jarðskaut
- Hússtjórnarkerfi og stjórnkerfisbúnaður
- Uppsetning á miðlægum vara vélbúnaði (kælipressur, aflstöð, hitakatlar)
- Öryggiseftirlit á framkvæmdasvæði
Markmið með þessu útboðsferli er að velja ráðgjafa til að taka að sér hlutverk verkeftirlits þær framkvæmdir.
Verkeftilitinu er skipt upp í tvo hluta sem skiptast svo:
- Norðan Burknagötu (Meðferðarkjarni (MFK) og Sóleyjartorg)
- Sunnan Burknagötu (Rannsóknarhús (RSH), Bíla-og tæknihús (BT), nýbyggingu húsnæðis heilbrigðisvísindssviðs (HVS) og tengigangar milli húsnæða)
Bjóðandi getur einungis orðið hlutskarpastur í einum hluta, þ.e bjóðandi er útilokaður frá því að fá báða hlutana. Bjóðanda er ekki skilt að bjóða í báða hlutana, það er heimilt að bjóða bara í annan þeirra.
Verkið skal framkvæma í samræmi við útboðs- og samningsskilmála þessa ásamt þeim gögnum sem þar er vísað til.
Sérfræðingar/ráðgjafar munu vinna með og í samvinnu við NLSH að undirbúningi verkefna skv. lögum um skipan opinberra framkvæmda þ.e., frumathugun og áætlunargerð.
Þjónustan sem óskað er eftir er:
• Teymisstjórn með faggreinum verkeftirlits
• Verkeftirlit
• Ráðgjöf á framkvæmdatíma
• Kostnaðareftirlit
• O.fl.
Upptalning af þjónustu er ekki tæmandi. Allt eftir verkefnum verða verkefnin unnin á stofunum sjálfum eða ráðgjafar verða staðsettir á Verkefnastofu í húsnæði NLSH meðan á verkefninu stendur.