Home Fréttir Í fréttum Perlumöl frá Austfjörðum slær í gegn í Ameríku

Perlumöl frá Austfjörðum slær í gegn í Ameríku

112
0
Ómar Antonsson eigandi perlumalarinnar, sem hefur nóg að gera við að flytja mölina til Ameríku. MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

Perlumöl frá Austfjörðum hefur slegið í gegn í Arisona í Bandaríkjunum þar sem hún er notuð í klæðningar í sundlaugar. Efnið, um tuttugu þúsund tonn er flutt sjóleiðina úr landi Horns í Hornafirði.

<>
Ómar og fyrirtæki hans er vel tækjum búið enda þýðir ekkert annað.
MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

Ómar Antonsson, sem er með fyrirtækið Litlahorn ehf., er með námu- og jarðvinnufyrirtæki í landi Horns í Hornafirði. Á svæðinu er meira en nóg af svartri perlumöl, sem Ómar nýtir sér til útflutnings og er nýtt í sundlaugar í Ameríku.

„Það er svolítið gaman af þessu en við þurfum að nota mikið vatn hér til að ná fína sandinum í burtu. Þetta lóðir allt saman sandur því þetta er hálfgerður sandur þó þetta sé perlumöl.

En þetta lukkast vel svona með sérstökum sigtum og svo er kannski það skemmtilegasta við þetta allt saman að það sem ég tek efnið í fjörunni kemur alltaf meira að því að þetta er sjálfbær náma,” segir Ómar kampakátur.

Og þú flytur þetta sjálfur úr landi eða hvað?

„Já, ég er með bryggju á svæðinu þar sem skipin koma inn og eru fyllt af mölinni og sigla með hana út.”

Hér er verið að fylla skip af perlumöl fá Ómari en efnið, um tuttugu þúsund tonn er flutt sjóleiðina úr landi Horns í Hornafirði árlega.
AÐSEND

Ómar segist flytja rúmlega tuttugu þúsund tonn af perlumöl út á ári.

„Já, menn verða að átta sig á því að Ameríka er dálítið stór reyndar en það er svolítið erfið markaðssetning þar. Það er ekkert auðvelt að markaðssetja efni og fara inn á markað og jafnvel ýta öðrum út til að koma sínu að. Það er stórmál en ég er með duglegan mann í því í Bandaríkjunum,” segir Ómar, sem er víða með klærnar úti.

„Já, það dugar ekkert annað, það er svoleiðis en það er svo sem allt í lagi því ég er með svo mikið af duglegu fólki í vinnu að þetta gengur allt ljómandi vel,” segir Ómar að lokum.

Heimild: Visir.is