Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Eins og vegurinn detti af himnum ofan í Teigsskóg

Eins og vegurinn detti af himnum ofan í Teigsskóg

155
0
Atli Þór Jóhannsson, framkvæmdastjóri Borgarverks. EGILL AÐALSTEINSSON

Verktakinn sem er að leggja veginn umdeilda um Teigsskóg stefnir að því að hann verði opnaður umferð í lok októbermánaðar. Hann segir vel hafa tekist að varðveita skóginn en athygli vekur að ekki er gert ráð fyrir neinum áningarstað fyrir vegfarendur.

<>

Í fréttum Stöðvar 2 voru sýndar myndir af framkvæmdum. Starfsmenn Borgarverks hófu verkið í maí í fyrra og núna hyllir undir verklok. Bundið slitlag var í síðustu viku lagt á ríflega tveggja kílómetra kafla vegarins. Enn er þó mikil vinna eftir við að klára alla tíu kílómetrana.

Veglínan ofan hins eiginlega Teigsskógar.
EGILL AÐALSTEINSSON

„Við stefnum á að það verði hægt að aka hér í gegn í lok október. Og við bara vonum að veðurguðirnir verði góðir við okkur og við náum að fylgja því,“ segir Atli Þór Jóhannsson, nýráðinn framkvæmdastjóri Borgarverks. Hann tók við starfinu þann 1. september af Óskari Sigvaldasyni, sem selt hefur eignarhlut sinn í fyrirtækinu til meðeigenda síns til margra ára, Kristins Sigvaldasonar.

Vegagerðin umdeilda er sennilega undir smásjá margra. Í hinum eiginlega Teigsskógi sést hvernig veglínan liggur ofan við mesta skógarþykknið og hvernig reynt er að hlífa hæsta og gróskumesta hluta skógarins.

„Við höfum nú gaman að segja frá því að við höfum fengið hrós frá mörgum stöðum, og sérstaklega frá náttúrufræðingum, hvað frágangur hefur gengið vel hérna og að varðveita skóginn,“ segir Atli Þór.

Neðan eyðibýlisins Hallsteinsness liggur veglínan í fjöruborðinu um vogskorna strandlengju með fjölda skerja. Þar má sjá hvernig búið er að þekja vegkanta með náttúrulegum gróðri svæðisins.

„Hérna var sérstök áhersla lögð á að ganga frá svokölluðum staðgróðri jafnóðum og verður í rauninni gott fyrir fólk að fylgjast með á næstum árum hvernig vegurinn á eiginlega að hafa dottið af himnum ofan,“ segir verktakinn.

Neðan Hallsteinsness liggur vegurinn í fjöruborðinu.
EGILL AÐALSTEINSSON

Fegurð Teigsskógarsvæðisins í Þorskafirði hefur verið dásömuð. En verða gerðir áningarstaðir svo vegfarendur geti einnig notið svæðisins?

„Nei. Þú verður að eiga það við Vegagerðina. Við gerum bara eins og okkur er sagt.“

-Þannig að Vegagerðin bað ekki um neinn áningarstað?

„Ekki samkvæmt hönnuninni, eins og hún er núna. En það má endilega bæta því við, ef það þarf,“ svarar Atli Þór.

Frá Hallsteinsnesi er kominn nýr sveitavegur inn Djúpafjörð að bænum Djúpadal. Þessi kafli mun gegna hlutverki Vestfjarðavegar þar til þverun Djúpafjarðar og Gufufjarðar lýkur.
EGILL AÐALSTEINSSON

Við Hallsteinsnes má sjá nýjan sveitaveg að bænum Djúpadal, sem annar verktaki, Norðurtak, er að leggja lokahönd á. Sá vegur mun tímabundið þjóna hlutverki Vestfjarðavegar, eða þar til lokaáföngum lýkur; þverun Gufufjarðar og Djúpafjarðar. Borgarverk er þegar búið að leggja hluta fyllingar út í sjó í átt að væntanlegu brúarstæði yfir Djúpafjörð.

Vegfylling er komin út í mynni Djúpafjarðar út frá Hallsteinsnesi.
EGILL AÐALSTEINSSON

Vegagerðin er núna búin að bjóða út næsta áfanga, sem eru fyllingar milli Hallsteinsness og Skálaness á 3,6 kílómetra kafla. Tilboðsfrestur rennur út 10. október næstkomandi en verkinu skal að fullu lokið eftir tvö ár, 30. september 2025. Þá verður brúarsmíðin yfir firðina eftir.

Heimild: Visir.is