Home Fréttir Í fréttum Húsavík: Sprengingar vegna gangagerðar fara í hönd

Húsavík: Sprengingar vegna gangagerðar fara í hönd

197
0
Mynd: Dagskráin.is / JS

Nú er undirbúningi fyrir jarðgangagerð í gegnum Húsavíkurhöfða að ljúka. Frá því um miðjan október hafa starfsmenn LNS Saga unnið við að hreinsa frá gangamunnanum að sunnanverðu til þess að hægt sé að hefja borun og sprengingar. Í lok febrúar kom skipið Winter Bay tvisvar til Húsavíkur með sérhæfðan gangabúnað frá Færeyjum þar sem gangagengi frá LNS í Noregi var að ljúka verki. Þessi vika fer í að standsetja búnaðinn og í næstu viku er ætlunin að byrja að sprengja.

<>

Fjöldi sprenginga dag hvern ræðst  af gæðum bergsins og þeirri vinnu sem þarf að framkvæma við bergstyrkingar hverju sinni. Ætla má að íbúar verði varir við hávaða frá fyrstu sprengingum en ónæðið minnkar og verður hverfandi þegar lengra verður komið inn í göngin.

Hinir reynslumiklu gangagerðarmenn frá Noregi telja ennfremur ólíklegt að bæjarbúar finni fyrir titringi frá sprengingum þar sem næstu íbúðarhús við göngin eru í umtalsverðri fjarlægð. Að sögn Norðmannanna sváfu allir vært í Færeyjum þótt sprengt væri fyrir göngum í innan við 10 metra fjarlægð frá íbúðarhúsum.

Norðan við Húsavíkurhöfða er unnið að vegagerð frá norðurmunna ganganna að iðnaðarsvæðinu á Bakka. Samhliða þessu hefur verið lagður vegur að Skurðsbrúnanámu þar sem vinna á grjót í brimvörn. Með hjálp heimamanna hafa ennfremur verið reistar vinnubúðir, mötuneyti og skrifstofur á Höfðanum.

Heimild: Dagskráin.is