Home Fréttir Í fréttum Nýr og rúmbetri töskusalur á Keflavíkurflugvelli

Nýr og rúmbetri töskusalur á Keflavíkurflugvelli

76
0
Mynd: Isavia.is

Nýr og rúmbetri töskusalur beið þeirra farþega sem lentu á Keflavíkurflugvelli upp úr hádegi í dag. Töskusalurinn er fyrsti áfanginn sem tekinn er í notkun í nýrri austurálmu flugstöðvarinnar og miðar að því að bæta aðstöðu fyrir farþega og upplifun þeirra.

<>

„Hér er hærra til lofts, víðara til veggja og færiböndin eru stærri og afkastameiri. Þannig getum við tekið betur á móti gestum Keflavíkurflugvallar, með betri aðstöðu til að bíða eftir farangrinum en vonandi einnig styttri bið,“ segir Maren Lind Másdóttir, forstöðumaður mannvirkja og innviða hjá Isavia.

Mynd: Isavia.is

„Keflavíkurflugvöllur er í stöðugri þróun sem gengur út á að bæta aðstöðu og ferðaupplifun farþega og um leið að gera hann samkeppnishæfari. Á næstu árum stígum við fleiri skref í sömu átt.“

Mynd: Isavia.is

Fyrsti áfangi austurálmu
Nýi töskusalurinn á Keflavíkurflugvelli er á jarðhæð í nýrri viðbyggingu við flugstöðina, svokallaðri austurálmu. Í honum eru þrjú stærri og breiðari farangursmóttökubönd, en gert er ráð fyrir að síðar geti tvö bönd bæst við. Samhliða því verða farangursböndin í gamla töskusalnum tekin niður en á því svæði verður síðar opnuð ný og endurbætt fríhafnarverslun fyrir komufarþega.

Nýja viðbyggingin er á þremur hæðum auk kjallara og hófust framkvæmdir um mitt ár 2021. Í dag var einnig tekið í notkun nýtt og afkastameira farangursmóttökukerfi sem staðsett er í kjallara byggingarinnar. Áætlað er að framkvæmdum við bygginguna ljúki á síðari hluta næsta árs þegar meðal annars verður tekið í notkun stærra veitinga- og biðsvæði á annarri hæð og fjórir nýir landgangar.

Austurálman er rúmir 20 þúsund fermetrar að stærð, en til samanburðar er Laugardalshöll um 17 þúsund fermetrar. Austurálman er 124,5 m að lengd, 66 m á breidd og 31 m á hæð.

Mynd: Isavia.is

Með sjálfbærni að leiðarljósi
Við hönnun, efnisval og val á tækni í austurálmu er leitast við að lágmarka kolefnisspor, bæta orkunýtingu og auka hagkvæmni í rekstri í samræmi við stefnu Isavia þar sem sjálfbærni er höfð að leiðarljósi. Til að tryggja aðhald mun austurálma fá óháða BREEAM-vottun, sem er þekktasta alþjóðlega vottunarkerfið fyrir sjálfbærni framkvæmda.

Heimild: Isavia.is