Kostnaðaráætlun í tengslum við Fossvogsbrú gerir ráð fyrir því að brúin muni kosta um 6,1 milljarð króna, um tvöfalt meira en gert var ráð fyrir árið 2021. Fyrirhugað er að bjóða út fyrstu framkvæmdir vegna Fossvogsbrúar nú á haustmánuðum.
Í kostnaðaráætlun er tekið tillit til hönnunar, framkvæmda, umsjónar og eftirlits.
Þetta segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg en Fossvogsbrú er hluti af verkefnum sem heyra undir Samgöngusáttmál höfuðborgarsvæðisins sem gerður var milli ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu árið 2019.
Fyrst verður boðin út vinna við landfyllingar á Kársnesi og við Nauthólsvík en gert ráð fyrir að vinna við landfyllingar hefjist fyrir áramót og taki um átta mánuði. Í framhaldinu á útboði landfyllinga verða framkvæmdir vegna smíði brúarinnar boðnar út og ættu þær að geta hafist um mitt næsta ár.
Spara 1,4 milljarða með ódýrara stáli
Samhliða útboðinu hefur verið gerð kostnaðaráætlun þar sem kostnaðurinn vegna hönnunar, framkvæmda, umsjónar og eftirlits er metinn á um 6,1 milljarð.
Þá gerir kostnaðaráætlun ráð fyrir um 1,4 milljörðum vegna landfyllinga. Aftur á móti sparast um 1,4 milljarðar króna með því að nota hefðbundið stál í stað ryðfrís stáls við byggingu brúarinnar eins áður hafði verið gert ráð fyrir, en um 1 milljarður á líftíma brúarinnar.
Í kostnaðaráætlun eru almennar verðhækkanir teknar með í reikninginn og markaðsverð á stáli og steypu sem eru aðalbyggingarefni brúarinnar, sem hefur hækkað mikið á hönnunartímanum. Kostnaður við landfyllingar ræðst af aðstæðum á markaði og einnig vegna þeirra niðurstaðna sem fengust úr sjávarbotnsrannsóknum.
Hönnun á lokastigum
Hönnun brúarinnar er á lokastigum að sögn Reykjavíkurborgar og er áformað að fullnaðarhönnun ljúki um næstu áramót. Undirbúningur fyrir framkvæmdirnar er því þegar hafinn og hafa Veitur fært háspennusæstreng sinn vegna fyrirhugaðrar legu brúarinnar.
Brúin, sem verður 270 metra löng og allt að 17,3 metrar á breidd, er hluti af fyrsta áfanga Borgarlínunnar og er markmiðið með henni er að bæta samgöngutengingar milli Reykjavíkur og Kópavogs.
Segir í tilkynningu Reykjavíkurborgar að leið gangandi og hjólandi vegfarenda milli Reykjavíkur og Kópavogs styttist um 1,2 km með tilkomu brúarinnar, auk þess sem hún tengi miðbæ Kópavogs betur við Háskólann í Reykjavík, Háskóla Íslands og miðbæ Reykjavíkur.
Heimild: Mbl.is