Home Fréttir Í fréttum Grímsnes- og Grafningshreppur: Fyrsta skóflustunga að nýju athafnasvæði við Sólheimaveg

Grímsnes- og Grafningshreppur: Fyrsta skóflustunga að nýju athafnasvæði við Sólheimaveg

132
0

Iða Marsibil Jónsdóttir sveitarstjóri tók í gær fyrstu skóflustungu á nýju athafnasvæði við Sólheimaveg.

<>

Deiliskipulag svæðisins tók gildi á vormánuðum og var verkið boðið út í kjölfarið og átti Suðurtak lægsta tilboð.

Svæðið í heild sinni telur 52 lóðir á um 23 hektara svæði en í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir 11 lóðum.

Borið hefur á aukinni eftirspurn eftir athafnalóðum sem henta stærri sem smærri fyrirtækjum og verktökum og er markmið verksins að styrkja atvinnulíf og byggðaþróun í sveitarfélaginu.

Verklok eru áætluð í nóvember 2023 og er stefnt er á úthlutun lóða í október.

Heimild: Grímsnes- og Grafningshreppur