Opnun tilboða 29. ágúst 2023.
Þjónusta og viðhald veglýsingar á hluta Suðurlands. Um er að ræða almenna þjónustu og viðhald á veglýsingarkerfinu, niðurtekt og uppsetningu lampa, peruskipti, stauraskipti og stauraréttingar og fleira.
Gildistími samnings er til 31. desember 2026.
Heimild er til framlengingar samnings í allt að tvö ár, eitt ár í senn.