Home Fréttir Í fréttum 10.09.2023 Vogabyggð 2 – Kuggavogur og Súðarvogur. Yfirborðsfrágangur

10.09.2023 Vogabyggð 2 – Kuggavogur og Súðarvogur. Yfirborðsfrágangur

361
0
Mynd: VÍSIR/EGILL.

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Vogabyggð 2 – Kuggavogur og Súðarvogur. Yfirborðsfrágangur. Útboð nr 15891

Lauslegt yfirlit yfir verkið: 
Um er að ræða heildarframkvæmda fyrir jarðvinnu undir stéttar, yfirborðsfrágangur gangstétta, götulýsing og frágangur regnbeða ásamt gróðursetningu og frágangi á yfirfalli.

Verkið felst í megindráttum í eftirfarandi:

  • Fullnaðarfrágangur jarðvinna undir ný gangstéttastæði.
  • Fullnaðarfrágangur götulýsingar í Duggu, Kugga og Súðarvogi.
  • Fullnaðarfrágangur kantsteins og hellulagðs yfirborðs.
  • Fullnaðarfrágangur blágrænna beða, gróðursetningar og frágangs á yfirfalli.
  • Fullnaðarfrágangur á fráveitulögnum og tengdum búnaði.

Helstu magntölur verksins eru:

  • Upprif á malbiki                                       250    m²
  • Malarfylling                                             300    m³
  • Malbikun                                                100     m²
  • Hellulögn                                              1.700   m²
  • Forsteyptur kantsteinn                             450    m
  • Tré og plöntur                                          250   stk
  • Fráveitulagnir                                          100    m
  • Brunnar                                                    2     stk
  • Jarðstrengir vegna götulýsingar                600    m
  • Ljósastaurar 5m                                      20     stk

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 15. ágúst 2023.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 5. september 2023.