Home Fréttir Í fréttum 21.08.2023 Vinnulagnir í Meðferðarkjarna og bílakjallara fyrir NLSH

21.08.2023 Vinnulagnir í Meðferðarkjarna og bílakjallara fyrir NLSH

242
0
Mynd: NLSH.is

Ríkiskaup, f.h. Nýs Landspítala ohf. (NLSH), óska eftir tilboðum í uppsetningar vinnulagna í nýbyggingu Meðferðarkjarna (MFK) og Bílakjallara undir Sóleyjartogi (BÍKJ).

<>

Verkið er liður í uppbyggingu nýs Landspítala við Hringbraut. Það innifelur uppsetningu vinnulagna (raf- og pípulagna) í nýbyggingum Nýs Landspítala ohf. við Hringbraut í Reykjavík.

Heildarflatarmál MFK er um 70.000 m2 á allt að 8 hæðum og BÍKJ um 7.500 m2 á 2 hæðum.

Verkefni þessa útboðs ná til kjallara K1 og K2, stanga (turna) 1, 2, 4 og 5, sem eru 6 hæðir, og stangar 3 sem er 4 hæðir.

Tilboðum skal skila í gegnum útboðskerfið Tendsign.is fyrir kl. 11:00, 21. ágúst 2023.

Útboðsgögn afhent: 21.07.2023 kl. 00:00
Skilafrestur 21.08.2023 kl. 11:00

Allar nánari upplýsingar um ferlið og útboðsskilmála er að finna gjaldfrjálst í útboðskerfinu TendSign, á vefslóðinni https://tendsign.is/.

Leiðbeiningar um skráningu og skil á tilboðum er hægt að nálgast á heimasíðu Ríkiskaupa https://www.rikiskaup.is/is/innkaup_og_utbod/upplysingar-fyrir-bjodendur/skil-a-tilbodum-tendsign.