Home Fréttir Í fréttum 21.08.2023 Ílagnir og rykbinding fyrir Meðferðarkjarna NLSH

21.08.2023 Ílagnir og rykbinding fyrir Meðferðarkjarna NLSH

217
0
Nýr Landspítali

Ríkiskaup  f.h. Nýs Landspítala ohf. (NLSH), óska eftir tilboðum í verktaka í útboðsverkið: Meðferðarkjarni (MFK) – frágangur innanhúss 1. áfangi (Ílögn og rykbinding).

<>

Verkið er liður í uppbyggingu nýs Landspítala við Hringbraut. Það innifelur frágang á ílögn og rykbindingu gólfa sem og rykbindingu, sandspörslun og grunnun steyptra veggja. Einnig skal verktaki ljúka við og skila lagnaleiðum raflagna í ílögn ásamt hluta Faraday búra í ýmis rými er koma í ílögn í Meðferðarkjarna nýs Landspítala við Hringbraut.

Heildarflatarmál Meðferðarkjarna er um 70.000 fermetrar. Um útboðið gildir ÍST 30:2012 Almennir útboðs- og samningsskilmálar um verkframkvæmdir.

Tilboðum skal skila í gegnum útboðskerfið Tendsign.is fyrir kl. 10:00, 21. ágúst 2023.

Útboðsgögn afhent:21.07.2023 kl. 00:00

Skilafrestur: 21.08.2023 kl. 10:00

Allar nánari upplýsingar um ferlið og útboðsskilmála er að finna gjaldfrjálst í útboðskerfinu TendSign, á vefslóðinni https://tendsign.is/.

Leiðbeiningar um skráningu og skil á tilboðum er hægt að nálgast á heimasíðu Ríkiskaupa https://www.rikiskaup.is/is/innkaup_og_utbod/upplysingar-fyrir-bjodendur/skil-a-tilbodum-tendsign.