Home Í fréttum Niðurstöður útboða Unnið að lengingu Lækjavalla á Grenivik

Unnið að lengingu Lækjavalla á Grenivik

88
0
Mynd á vefsíðunni grenivik.is

Til stendur að lengja götuna Lækjarvelli á Grenivík. Leitað var tilboða hjá nokkrum verktökum vegna fyrri hluta þessa verkefnis, sem eru jarðvegsskipti og lagnir.

<>

Þrjú tilboð bárust. Steypustöðin Dalvík átti lægsta boð, tæplega 14,8 milljónir króna, 79% af áætluðum kostnaði. GV gröfur buðu ríflega 17.3 milljónir, 93% af kostnaðaráætlun. Tilboð frá Finni ehf var upp á 25 milljónir, 134% af kostnaðaráætlun, sem nema rúmlega 18,7 milljónum króna.

Sveitarstjórn ákvað að taka tilboði lægstbjóðanda, Steypustöðvarinnar á Dalvík.  Áformað er að verkið verði unnið í september, en að gatan verði fullfrágengi og malbikuð á næsta ári.

Heimild: Vikudagur.is