Home Fréttir Í fréttum Synjað um byggingar­leyfi: „Stór­fjöl­skyldu­hús“ með baði og eld­húsi í hverju her­bergi

Synjað um byggingar­leyfi: „Stór­fjöl­skyldu­hús“ með baði og eld­húsi í hverju her­bergi

211
0
Lóðin við Blesugróf þrjátíu. VÍSIR/SIGURJÓN

Skipulagsráð Reykjavíkurborgar hafnaði á fundi í maí beiðni um byggingu 290 fermetra einbýlishúss við Blesugróf í Reykjavík. Á teikningum af húsinu mátti sjá að baðherbergi og eldhúskrók var að finna í öllum átta herbergjum hússins.

<>

Lóðin sem um ræðir er við Blesugróf þrjátíu í Fossvogi í Reykjavík. Beiðni um byggingu á einbýlishúsi barst frá einkahlutafélaginu Sýrfell ehf, sem er í eigu Dagbjarts Helga Guðmundssonar, byggingaverkfræðings.

Fjórtán útgangar eru úr húsinu, sem er 290 fermetrar samkvæmt teikningu.
REYKJAVÍKURBORG

Af teikningu má sjá að tvö hjónaherbergi eru í húsinu, fjögur einstaklingsherbergi, leikherbergi og vinnuherbergi. Í öllum herbergjunum er gert ráð fyrir svefnaðstöðu, eldhúskrók, baðherbergi og sérinngangi.

Í samtali við Vísi segir Dagbjartur, eigandi Sýrfells, áformin með húsinu hafa verið að byggja svokallað stórfjölskylduhús. Hann hafi ekki haft hug á að vera með neins konar rekstur í húsinu heldur einungis viljað prófa nýstárlega leið til byggingar.

Hann segist ekki hafa ákveðið hvort hann stefndi á að eiga eða selja húsið, hefði leyfi verið gefið fyrir byggingu á húsinu.

Í umsögn skipulagsfulltrúa um beiðnina segir að erfitt sé að sjá að um ræði einbýlishús. Þá er hönnuði bent á að bygging fari að auki út fyrir byggingareit og aðliggjandi lóðamörk. Kóti aðalhæðar sé undir leyfilegum kóta samkvæmt gildandi deiliskipulagi. Hönnuði er að auki bent á að ganga þurfi frá mælingu byggingareits frá lóðamörkum.

Heimild: Visir.is