Vegagerðin býður hér með út gerð gönguþverana annars vegar yfir Nesbraut og hins vegar yfir Ánanaust. Innifalið í verkinu er aðlögun götukanta, yfirborðsfrágangur, uppsetning götulýsingar og umferðaljósa og allur frágangur annar í samræmi við útboðsgögn.
Helstu magntölur í verkinu eru:
· Upprif á malbiki, steypu og hellum 305 m2
· Upprif á steyptum kantsteini 300 m
· Gröftur 400 m3
· Fylling 350 m3
· Púkk og mulningur 280 m2
· Lagning kantsteina 450 m
· Malbikun 300 m2
· Hellulögn 230 m2
· Þökulögn 200 m2
· Götulýsing – stólpar 4 stk.
· Umferðarljós – stólpar 8 stk.
· Rafstrengir 320 m
Verkinu skal að fullu lokið 15. september 2023.
Tilboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 5. júlí 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 18. júlí 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign