Home Fréttir Í fréttum Borgin riftir samningi um uppbyggingu 176 íbúða

Borgin riftir samningi um uppbyggingu 176 íbúða

131
0
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, Grímur M. Jónasson, framkvæmdastjóri VSÓ og Bjarki A. Brynjarsson, framkvæmdastjóri Vesturbugtar skrifuðu undir samninginn í maí 2017. REYKJAVÍKURBORG

Reykjavíkurborg hefur rift samningi sínum við Vesturbugt ehf. um uppbyggingu í Vesturbugt við gömlu höfnina í Reykjavík. Reykjavíkurborg ber fyrir sig vanefndir vegna tafa en Vesturbugt ehf. telur riftunina ólögmæta, meðal annars vegna þess að deiliskipulag fyrir svæðið hefur ekki enn verið samþykkt.

<>

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að samningurinn um uppbyggingu á tveimur lóðum í Vesturbugt hafi verið undirritaður eftir forval og keppnisviðræður og á grundvelli tilboðs félagsins árið 2017.

Í samningnum hafi fyrst og fremst falist að Reykjavíkurborg seldi félaginu byggingarrétt á lóðunum Hlésgötu 1 og Hlésgötu 2, þar sem heimilað var í samræmi við deiliskipulag að byggja allt að 18.400 fermetra húsnæði ofanjarðar auk bílakjallara og geymslna. Miðað hafi verið við að íbúðir yrðu allt að 176 og atvinnuhúsnæði um 1.665 fermetrar.

Mikill fjöldi íbúða átti að rísa á besta stað í bænum.
REYKJAVÍKURBORG

Vesturbugt ehf. hafi í tilboði sínu boðist til þess að greiða fyrir lóðirnar og byggingarréttinn með því að afhenda Reykjavíkurborg kvaðalaust um 74 íbúðir í húsunum og 170 bílastæði í bílakjallara.

Réðst aldrei í framkvæmdir

„Félagið hefur ekki hafið framkvæmdir, og allir umsamdir frestir Vesturbugtar ehf. til að byggja á lóðunum liðnir. Vegna þessara vanefnda hefur Reykjavíkurborg því rift samningnum við Vesturbugt ehf. um uppbyggingu á lóðunum og afturkallað úthlutun til félagsins á lóðinni Hlésgötu 1. Nú er í undirbúningi lítilsháttar endurskoðun á gildandi deiliskipulagi fyrir Vesturbugt. Reykjavíkurborg áformar að lóðirnar verði boðnar út að nýju í haust,“ segir í tilkynningu.

Reykjavíkurborg hefur áður hótað að rifta samningnum. Fjallað var um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 í apríl í fyrra. Reykjavíkurborg hefur áður hótað að rifta samningnum.

Vesturbugt ehf. mótmælir

Fyrir skömmu birti fasteignafélagið Kaldalón hf., en dótturfélag þess er langstærsti hluthafi Vesturbugtar ehf., tilkynningu til kauphallar um að samningnum hefði verið rift.

Í henni segir að Vesturbugt ehf. telji riftun Reykjavíkurborgar ekki lögmæta, meðal annars þar sem deiliskipulag fyrir Vesturbugt, sem sé nauðsynlegur undanfari framkvæmda, hafi ekki enn verið staðfest.

Þá hafi Reykjavíkurborg einnig gert kröfur um tryggingar, sem geri viðskiptabönkum ókleift að fjármagna verkefnið. Þannig séu í raun brostnar forsendur fyrir verkefninu.

Riftun Reykjavíkurborgar á samningi um Vesturbugt muni þó hafa engin eða óveruleg áhrif á rekstur og efnahag Kaldalóns hf.

Segir fullyrðingarnar fyrirslátt

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir þessar fullyrðingar vera fyrirslátt hjá Kaldalóni ehf., í samtali við fréttastofu.

„Riftunin er fullkomlega eðlileg miðað við forsögu málsins. Borgin mun bjóða þessar frábæru lóðir aftur út í haust,“ segir borgarstjóri.

Hann segir að samþykkt hafi verið endanlega á fundi borgarráðs á fimmtudag í síðustu viku að rifta samningi borgarinnar við Vesturbugt ehf. vegna vanefnda félagsins. Viðræður og umleitanir við félagið á undanförnum árum hefðu engu skilað.

„Félagið hefur ekki hafið framkvæmdir og allir umsamdir frestir Vesturbugtar ehf. til að byggja á lóðinni eru liðnir,“ segir borgarstjóri.

Þá segir Dagur að bílastæðin 170, sem Vesturbugt ehf. hafi lofað að afhenda borginni hafi átt að vera almenn stæði fyrir íbúa borgarinnar og að borgin teldi eðlilegt að lagðar væru fram tryggingar fyrir því að borgin fái það sem um var samið.

Heimild: Visir.is