Home Fréttir Í fréttum 07.07.2023 Loftræsisamstæður fyrir 1. og 2. áfanga Rimaskóla

07.07.2023 Loftræsisamstæður fyrir 1. og 2. áfanga Rimaskóla

68
0
Rimaskóli Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Loftræsisamstæður fyrir 1. og 2. áfanga Rimaskóla, útboð nr. 15869

Lauslegt yfirlit yfir verkið:

Um er að ræða tvær eins loftræsisamstæður sem hvor þjónustar eina álmu skólans.

Afköst, stærð og fyrirkomulag á loftræsisamstæðunum er eins fyrir báðar samstæðurnar.

Stýring fyrir samstæður skal vera sjálfstæð fyrir hverja samstæðu og koma tilbúin og uppsett með samstæðu frá framleiðanda.

Helstu tæknikröfur samstæða 1 og samstæða 2:

  1. Loftmagn 4.000 l/s @ 200 Pa
  2. Varmaendurvinnsla 80% um plötuvarmaskipti (með framhjáhlaupi)
  3. Hæð ekki meiri en 2300 mm (takmarkað pláss í þakrými)
  4. Breidd ekki meiri en 2300 mm (takmarkað pláss í þakrými)

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 15:00 þann 23. júní 2023.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 7. júlí 2023.