Home Fréttir Í fréttum 29.06.2023 Tónmenntaskóli Reykjavíkur og Fjósið. Endurnýjun og viðhald

29.06.2023 Tónmenntaskóli Reykjavíkur og Fjósið. Endurnýjun og viðhald

120
0
Mynd: Reykjavík

Tónmenntaskóli Reykjavíkur og Fjósið. Endurnýjun á útveggjaklæðningu, þakklæðningu og viðhaldi á gluggum 2023.

<>

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

Tónmenntaskóli Reykjavíkur og Fjósið. Endurnýjun á útveggjaklæðningu, þakklæðningu og viðhaldi á gluggum 2023, útboð nr. 15838

Lauslegt yfirlit yfir verkið:

Tónmenntaskóli Reykjavíkur stendur við Lindargötu 51 í Reykjavík og Fjósið er bakhús norðan megin við skólann. Skólinn er einlyft bárujárnsklætt timburhús með risi og reist á hlöðnum steinkjallara. Fjósið er einnar hæðar bárujárnsklædd bygging á hlöðnum sökkli með risþaki. Verkið felst í að endurnýja bárujárn útveggja og þaks ásamt endurnýjun og viðhaldi á hurðum og gluggum.

Helstu magntölur:

Endurnýjun á bárujárni útveggja:

  • Skólinn 196m2
  • Fjósið 101m2

Endurnýjun á bárujárni þaks:

  • Fjósið 78m2

Áætluð verklok: 15. október 2023.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 5. júní 2023.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 29. júní 2023.