Home Fréttir Í fréttum 05.07.2023 Úlfarsárdalur. Varðturn við Dalslaug

05.07.2023 Úlfarsárdalur. Varðturn við Dalslaug

180
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Úlfarsárdalur. Varðturn við Dalslaugútboð nr. 15830

Lauslegt yfirlit yfir verkið:

Verkið felst í byggingu nýs varðturns við Dalslaug í Úlfarsárdal.

Dalslaug er sunnan við Úlfarsbraut og hluti af byggingarkeðju sem er fullbyggð og innifelur að auki skólabyggingu, menningarmiðstöð og íþróttahús.

Helstu verkþættir eru:

Jarðvinna, uppsteypa, frágangur utanhúss, frágangur innanhúss, raflagnir og lagnir.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 5. júní 2023.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 5. júlí 2023.