RARIK óskar eftir tilboðum í verkið Berufjörður 11-33kV strenglögn, 23040. Verkið felst í plægingu á 3x150q 12 kV háspennustreng frá Núpi að Fagrahvammi ásamt 3x1x150q (þrír samliggjandi einleiðarar) 36kV háspennustrengjum frá Núpi að landtaki núverandi sæstrengs við Fagrahvamm.
Einnig óskar fjarskiptafyrirtæki eftir að lagt verði ljósleiðararör með frá Núpi að Fagrahvammi. Í verkinu er einnig plæging/gröftur lágspennuheimtauga og jarðvinna í tengslum við jarðspennistöðvar og tengiskápa á lagnaleiðinni. Um er að ræða opið útboð á EES svæðinu.
Fyrirspurnarfrestur rennur út | 05.06.2023 kl. 12:00 |
Svarfrestur verkkaupa rennur út | 07.06.2023 kl. 12:00 |
Opnunartími tilboða | 12.06.2023 kl. 14:00 |
Opnunarstaður tilboða | Rafræn opnun í útboðskerfi verkfræðistofunnar Verkís |
Berufjörður 11-33kV – strenglögn 23040
Berufjörður 11-33kV – Magntölur – tilboðsblað 23040
Viðaukar
Upplýsingablað 1x150q 36kV Háspennustrengur
Upplýsingablað 3x50q og 3x150q 12kV
Stöðlunarhandbók – Útg. 3.0 – Júní 2015
Jardstrengshandbok-RARIK-mars-2022
Verkgreiningar með skýringum_2.23
Leiðbeiningar vegna teikninga í útboði