Home Fréttir Í fréttum 26.06.2023 Gatnalýsing – Útskipting lampa 2023

26.06.2023 Gatnalýsing – Útskipting lampa 2023

72
0
Mynd: Byggingar.is

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Gatnalýsing – Útskipting lampa 2023, EES útboð nr. 15841

Lauslegt yfirlit yfir verkið:

Verkið felur í stórum dráttum í sér útskiptingu á lömpum í götu-, stíga og svæðislýsingu í eigu Reykjavíkurborgar. Verkkaupi útvegar alla lampa sem verktaki setur upp og tengir.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 15:00 þann 22. maí 2023.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 26. júní 2023.