Home Fréttir Í fréttum 20.06.2023 Hvalfjarðargöng, rekstur og þjónusta 2023-2025

20.06.2023 Hvalfjarðargöng, rekstur og þjónusta 2023-2025

138
0
Hvalfjarðargöng. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í rekstur og þjónustu í Hvalfjarðargöngum árin 2023-2025.

<>

Í aðalatriðum felst verkið í eftirfarandi:

Útkallsþjónustu, þ.e. að bregðast við útköllum vegna bilana eða atvika sem verða í          göngunum og bregðast þarf strax við.

Umferðarstjórnun þegar göngunum er lokað eða umferð takmörkuð í gegnum þau,           t.d. vegna úttekta og/eða viðhalds.

Þátttöku og aðstoð vegna funda og æfinga viðbragðsaðila.

Reglubundnu eftirliti og ástandsgreiningum.

Viðhaldsvinnu á búnaði.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign   frá og með mánudeginum 22. maí 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 120. júní 2023.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.