Home Fréttir Í fréttum Lóðir í Skógarhverfi, áfanga 5 og 3A, lausar til umsóknar á Akranesi

Lóðir í Skógarhverfi, áfanga 5 og 3A, lausar til umsóknar á Akranesi

133
0
Mynd: Akranes.is

Þann 16. maí var opnað fyrir umsóknir þriggja fjölbýlishúsalóða og sex einbýlishúsalóða við Tjarnarskóga auk einnar einbýlishúsalóðar við Skógarlund.

<>

Sótt er um lóðirnar á vefnum www.300akranes.is .

Umsækjandi skráir sig inn með rafrænum skilríkjum og lýkur við að fylla umsóknareyðublaðið út.

Greiða þarf umsóknargjald, kr. 200.000,- og sendir umsækjandi afrit af greiðslukvittuninni með umsókninni. ATHUGA – greiðandi og umsækjandi lóðar skal vera sá sami.

Heimild: Akranes.is