Ríkiskaup fyrir hönd Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna (FSRE), óska eftir tilboðum í verkefnið DYNJANDI – ÚTSÝNISPALLAR, Ú3, Ú4 og Ú5.
Verkefnið felur í sér gerð útsýnispalla Ú4 við Strompgljúfrafoss, og Ú5 við Hæstahjallafoss neðan Dynjanda, ásamt handriðum þar í kring. Einnig útsýnis-/áningarstað Ú3 neðan Strompgljúfurs.
Útsýnispallar og handrið Ú4 og Ú5 eru úr svörtu stáli grundaðir á klöpp. Efni þarf að hífa á sinn stað með þyrlu eftir því sem þurfa þykir, skv. nánari skýringum í útboðsgögnum.
Áningarstaður Ú3 er uppbyggður göngustígur, steinhleðslur og setbekkir. Uppgræðsla raskaðra svæða við Ú3 og Ú5 er hluti verksins.
Helstu magntölur:
Frágangur yfirborðs 280 m2
Uppgröftur og fyllingar 140 m3
Stálvirki útsýnispalla og handriða. 5630 kg
Myndband af verkstað, landslagi og hönnun, byggt á þrívíðri skönnun lands í sept. 2020 liggur á eftirfarandi vefslóð https://landform.is/portfolio/dynjandi/
Frestur til að skila inn rafrænum tilboðum er til kl. 10.00 fimmtudaginn 15. júní.
Allar nánari upplýsingar er að finna í rafrænu útboðskerfi Ríkiskaupa, TendSign.
Leiðbeiningar varðandi útboðskerfið má nálgast á heimasíðu Ríkiskaupa.