Opnun tilboða 9. maí 2023. Hreinsun þjóðvega í Reykjavík og Hvalfjarðargöngum árin 2023-2025.
Verkið felur í sér sópun meðfram kantsteinum, þvott á gatnamótum og tilheyrandi umferðareyjum, hreinsun svæða meðfram þjóðvegum ásamt þvotti á Hvalfjarðargöngum með vélsópum, vatnsbílum, sugum og öðrum tækjum sem henta þykir. Heimild er til framlengingar samnings í allt að tvö ár með samþykki beggja aðila, eitt ár í senn.
Helstu magntölur á ári fyrir þjóðvegi í Reykjavík eru:
- Sópun meðfram kantsteinum 544.024 m
- Þvottur á gatnamótum og umferðareyjum 13.840 m2
- Sérverkefni, viðbótarverk, götusópur 30 klst.
- Sérverkefni, viðbótarverk, vatnsbíll 30 klst.
- Sérverkefni og viðbótarverk, ryksugubíll 30 klst.
- Sérverkefni og viðbótarverk, fylgdarbíll 30 klst.
- Ruslahreinsun meðfram þjóðvegum 13 stk.
Helstu magntölur á ári fyrir Hvalfjarðargögn eru:
- Sópun meðfram kantsteinum 138.240 m
- Hvalfjarðagöng, hálfþvottur 2 stk.
- Hvalfjarðargöng, heilþvottur 1 stk.
Verkinu skal að fullu lokið 15. mars 2025.