Home Fréttir Í fréttum 31.05.2023 Álfnesvegur – Gatnagerð

31.05.2023 Álfnesvegur – Gatnagerð

216
0
Álfsnes Mynd: Sorpa

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Álfnesvegur – Gatnagerð, útboð nr. 15836

Lauslegt yfirlit yfir verkið:

Verkið felur í sér gatnagerð (Álfsnesvegur) innan veghelgunarmarka Sundabrautar frá Víðinesvegi í norðri, í gengum athafnasvæði Sorpu þar sem hann tengist nýju athafnasvæði Björgunar í suðri. Kaflinn er um það bil 700 m með tvennum T-gatnamótum og einum X-gatnamótum. Malbikun verður ekki partur í þessu útboði þar sem umferð verður látin jafna veginn.

Helstu magntölur eru:

  • Gröftur og uppúrtekt                  5.500  m3
  • Fyllingar                                   4.000  m3
  • Sáning                                     5.000  m2

Verklok. 15. September 2023

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 16. maí 2023.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 31. maí 2023.