Home Fréttir Í fréttum Óskar í Óskataki sér fram á að vinna fyrir 5,4 milljarða króna

Óskar í Óskataki sér fram á að vinna fyrir 5,4 milljarða króna

385
0
Óskar Ólafsson er framkvæmdastjóri Óskataks ehf., sem átti lægsta boð í gerð Arnarnesvegar. EINAR ÁRNASON

Lægsta boð í gerð Arnarnesvegar um Vatnsendahæð í efri byggðum Kópavogs reyndist 718 milljónum króna undir kostnaðaráætlun. Boðið kom frá verktökunum Óskataki og Háfelli og er upp á 5,4 milljarða króna.

<>

Í fréttum Stöðvar 2 var birt myndskeið sem Verkfræðistofan Verkís gerði fyrir Vegagerðina. Þau sýna hvernig þessi austasti kafli Arnarnesvegar milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar mun líta út að verki loknu. Þetta er stærsta útboðsverk Vegagerðarinar á árinu til þessa.

Svona verða gatnamót Breiðholtsbrautar og Arnarnesvegar.
VEGAGERÐIN/VERKÍS

Þegar tilboð voru opnuð í dag reyndist verktakakostnaður vera áætlaður 6.150 milljónir króna króna. Sameiginlegt boð Óskataks og Háfells, upp á 5.433 milljónir króna, reyndist það lægsta, 88,3 prósent af kostnaðaráætlun. Tilboð Jarðvals upp á 5.685 milljónir króna, var 92,4 prósent af áætluðum kostnaði en hin þrjú tilboðin, frá risunum í verktakageiranum, voru öll yfir.

Fimm tilboð bárust í verkið.
GRAFÍK/SARA RUT FANNARSDÓTTIR

Lægstbjóðandann, Óskar Ólafsson, framkvæmdastjóra Óskataks ehf., hittum við í jarðvinnu á Dalvegi í Kópavogi síðdegis, og við spyrjum hvort þetta yrði langstærsta verkið þeirra.

„Já, þetta er svona í stærri kantinum. En við erum margir sem komum að þessu þannig að þetta verður bara fínt,“ svarar Óskar.

Arnarnesvegur um Vatnsendahæð séður frá Rjúpnavegi.
VEGAGERÐIN/VERKÍS

Vegagerðin miðar við að framkvæmdir hefjist í sumar, sem hentar Óskari vel, fái hann verkið.

„Það leggst bara mjög vel í okkur. Við erum að skila af okkur núna í júlí flestöllum verkunum. Þannig að við getum farið með allan flotann í þetta. Við erum með 32 tæki sem þurfa að komast í vinnu,“ segir Óskar.

Vegarkaflinn er nærri tveggja kílómetra langur en honum fylgja tvö hringtorg, brúarmannvirki, og göngu- og hjólastígar með tvennum undirgöngum og tveimur brúm fyrir gangandi og hjólandi. Stærsti hluti verksins er akstursbrú yfir Breiðholtsbraut, tengd með slaufu en ljósastýrðum gatnamótum.

Ný göngu- og hjólabrú verður reist yfir ána Dimmu í Víðidal.
VEGAGERÐIN/VERKÍS

Nýir göngu- og hjólastígar verða tengdir stígakerfi Elliðaárdals og ný göngu- og hjólabrú reist yfir Elliðaár eða Dimmu eins og áin nefnist á þessum kafla.

Samtök sem nefnast Vinir Vatnsendahvarfs börðust gegn framkvæmdinni en án árangurs. Það eru þó eflaust margir sem koma til með að fagna henni, ekki síst íbúar Vatnsendahverfis í Kópavogi sem sjá fram á að umferð í gegnum hverfið muni minnka þegar vegurinn verður tilbúinn eftir þrjú ár en verklok eru tímasett 1. ágúst 2026.

Ný göngu- og hjólabrú verður reist yfir ána Dimmu í Víðidal.
VEGAGERÐIN/VERKÍS

Vegagerðin segir markmiðið með framkvæmdinni að auka umferðaröryggi vegfarenda og stytta ferðatíma, auk þess að létta verulega á umferð um Vatnsendaveg. Í Kópavogi, austan Reykjanesbrautar, búa hátt í 15.000 manns. Þá muni vegkaflinn bæta viðbragðstíma fyrir neyðaraðila í efri byggðum Kópavogs og Reykjavíkur til muna.

Heimild: Visir.is