Home Fréttir Í fréttum Þrjú ný íbúðahverfi í byggingu á Selfossi

Þrjú ný íbúðahverfi í byggingu á Selfossi

199
0
Fjóla S. Kristinsdóttir, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Árborgar í pontu á fagþingi Samorku, sem fór fram á Selfossi í síðustu viku. MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

Íbúum í Árborg hefur fjölgað um tæplega þrjátíu prósent á síðustu sjö árum og ekkert útlit er fyrir að það muni hægja á þessari fjölgun á næstu árum. Í dag eru þrjú íbúðahverfi í byggingu á Selfossi og eitt til viðbótar í samþykktarferli í sveitarfélaginu.

<>

Það hefur verið með ólíkindum að fylgjast með allri þessari íbúafjölgun í Sveitarfélaginu Árborg síðustu ekki ár, ekki síst á Selfossi því þar hafa ný hverfið sprottið upp eins og gorkúlur. Í dag er íbúatala Árborgar um 11.300 manns.

Fjóla S. Kristinsdóttir, bæjarstjóri í Árborg fór meðal annars yfir þessar fjölgun íbúa í ávarpi, sem hún flutti í vikunni á þingi Samorku á Selfossi en Samorka er Samtök orku- og veitufyrirtækja á Íslandi

„Hér hefur íbúum fjölgað um rúmlega fjórðung á síðustu sjö árum, eða um 27,4% frá árinu 2016. Og fyrirséð er að sú uppbygging muni halda áfram næstu árin. Um þessar mundir eru þrjú íbúðahverfi í uppbyggingu og eitt til viðbótar í samþykktarferli. Iðnaðarhverfi er í byggingu og fleiri í deiliskipulagsvinnu og í þeim samþykktu hverfum, sem nú eru í byggingu munu búa um 5 þúsund manns þegar fram líða stundir, sem sýnir okkur að íbúar hafa trú á uppbyggingunni og svæðinu til framtíðar,” sagði Fjóla.

Um fimm þúsund manns munu búa í nýju hverfunum, sem er verið að byggja á Selfossi. Íbúar Árborgar eru í dag um 11.300 talsins.
MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

Fjóla hrósaði nýja miðbænum á Selfossi, sem hefur gjörbreytt bæjarbragnum, bæði fyrir heimamenn og gesti.

„Þar blómstrar hverskyns matar- og menningarstarfsemi í bland við verslun og skemmtilegt íbúaform. Miðbærinn er gríðarlegt aðdráttarafl fyrir ferðamenn með jákvæð áhrif á hótel, sem eru þétt setinn með ráðstefnur og þing samtaka eins alls staðar úr heiminum. Árborg er í dag heitur reitur í ferðaþjónustu, atvinnubyggingu og mannlífi á Suðurlandi.”

Það er þó ekki allt jákvætt við mikla íbúafjölgun í Árborg því skortur á heitu vatni hefur verið hamlandi fyrir sveitarfélagið í allri uppbyggingunni eins og bæjarstjórinn kom inn á í ávarpi sínum.

„Við teljum því mikilvægt að leggja áfram áherslu á uppbyggingu Selfossveitna hvað öflun á heitu vatni snertir. Þar ber helst að nefna tilraunaborholur, samninga um jarðhitaréttindi og viðræðum um samstarf við önnur orkufyrirtæki en þetta er allt afar kostnaðarsamt,” sagði bæjarstjóri Árborgar í ávarpi sínu á fagþingi Samorku.

Heimild: Visir.is