Home Fréttir Í fréttum 16.05.2023 Stækkun leikskóla á Hornafirði– Sjónarhóll

16.05.2023 Stækkun leikskóla á Hornafirði– Sjónarhóll

159
0
Hornafjörður

Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í verkið
„STÆKKUN LEIKSKÓLA Á HORNAFIRÐI – SJÓNARHÓLL“ eins og því er lýst í meðfylgjandi útboðsgögnum.

<>

Hér er um almennt útboð að ræða og lýtur þeim reglum sem um það gilda. Innifalið í tilboði skal vera allt það sem til þarf að ljúka verkinu eins og það er skilgreint í útboðsgögnum.

Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verkið felst í að reisa tveggja deilda viðbyggingu við núverandi byggingu leikskólans Sjónarhóls. Núverandi leikskóli er skráður sem matshluti 1- og er 980,1 m²- og ný viðbygging er skráð sem matshluti 2- og verður 356,72 m². Viðbyggingin er grunduð á staura. Útveggir viðbyggingar verða timburveggir klæddir með ljósri álklæðningu. Gluggar- og útihurðir eru ál-tré kerfi- og þak er hefðbundið loftað timburþak, klætt með þakpappa. Viðbyggingin skal að framkvæmdum loknum hljóta norræna Svansmerkið fyrir umhverfisvæna hönnun og efnisval.

Helstu verkþættir
Um er að ræða jarðvinnu, niðurrekstur staura, stálvirki, timburburðargrind, lagnir, raflagnir, ytri- og innri frágang, búnað og lóðargerð

Vettvangskönnun á verkstað
Vettvangskönnun verður haldin með tilboðsgjöfum eftir óskum. Nákvæm tímasetning og fyrirkomulag vettvangskönnunar verður skv. samkomulagi aðila. Bjóðendur eru hvattir til að mæta í vettvangskönnun og kynna sér aðstæður á verkstað.

Útboðsgögn
Útboðsgögn bera nafnið: „STÆKKUN LEIKSKÓLA Á HORNAFIRÐI – SJÓNARHÓLL“ og sundurliðast eftirfarandi:

  • Útboðs- og verkskilmálar
  • Teikningar og verklýsingar arkitekta, gerðar af Arkþing – Nordic ehf.
  • Teikningar og verklýsingar, gerðar af Mannvit ehf. þ.e. Jarðvinna, Burðarvirki, lagnir, loftræsting, raflagnir
  • Teikningar og verklýsingar, gerðar af Landhönnun slf. Hönnun lóðar
  • Tilboðsblað ásamt tilboðsskrá

 

Útboðsgögn fást afhent rafrænt án endurgjalds frá og með 17.04.2023, eftir klukkan 13:00, með því að senda fyrirspurn í tölvupósti á netfangið utboð@hornafjorður.is til vara bjorni@hornafjordur.is – og óska eftir því að fá send útboðsgögn í verkið „Stækkun leikskóla á Hornafirði – Sjónarhóll “. Þá verður fljótlega sendur hlekkur til baka á þann stað sem hægt verður að sækja gögnin: Vinsamlegast takið fram í viðfangsefni pósts „STÆKKUN LEIKSKÓLA Á HORNAFIRÐI – SJÓNARHÓLL “.

Tilboðsgjafar skulu vera búnir að skila inn tilboði merktu STÆKKUN LEIKSKÓLA Á HORNAFIRÐI – SJÓNARHÓLL Tilboð” eigi síðar en þriðjudaginn 16. maí 2023 kl. 14:00. er þau verða opnuð samtímis í viðurvist þeirra bjóðenda er þess óska.

Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Tilboð eru bindandi í 5 vikur frá opnunardegi.

Nánari upplýsingar veita
Björn Imsland eða Brynja Dögg Ingólfsdóttir. Sími 470-8000. Netfang utboð@hornafjordur.is til vara bjorni@hornafjordur.is